Þessi var nokkuð langur
19.8.2011 | 07:03
Við fundum skjálftann vel og hann varði í þó nokkurn tíma. Við erum samt orðin furðulega vön þessum skjálftum og við stoppum bara allt sem við erum að gera á meðan hann ríður yfir svo við séum tilbúin til að hlaupa út (eða undir borð) ef sá stóri skyldi skella á.
Stelpurnar kippa sér ekkert upp við þetta og jarðskjálfti er orðinn partur af programmet hér úti. Ég verð jafnframt að viðurkenna að mér finnst eitthvað notalegt við þessa skjálfta, sérstaklega eftir að við keyptum nýja skápinn og ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því að skápurinn og allt postulínið muni hrynja í miðjum skjálfta.
|
Flóðbylgjuviðvörun í Japan |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |






Athugasemdir
Vonandi þarftu ekki að upplifa enn stærri skjálfta en kom um daginn þó að nokkrar líkur sé á að hann komi.
Sigurður Haraldsson, 19.8.2011 kl. 23:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.